Tálknafjarðarhreppur hefur tekið í gagnið nýjan vef sem keyrir um á vefumsjónarkerfinu Snerpill frá Snerpu. Við hönnun hans var litið til þess að hafa sem greiðast aðgengi að þeim upplýsingum sem notendur þurfa hvað mest á að halda.

Tálknafjarðarhreppur er sjötta sveitarfélagið á Vestfjörðum sem nýtir sér Snerpils vefumsjónarkerfið en það hefur verið í mikilli sókn á undanförnum árum.

Skoða má nýjan vef hreppsins á talknafjordur.is 
Nýr vefur rokkhátíðar alþýðunnar Aldrei fór ég suður er kominn í loftið. Síðan er hönnuð af snillingnum Ágústi Atlasyni og keyrir á vefumsjónarkerfinu Snerpli frá Snerpu. Á síðunni er að finna ýmsar nýjungar auk þess sem til stendur þar fari fram öflugari fréttaflutningur en á gamla vefnum. Þar er að auki að finna gagnlegar upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar, Ísafjörð, heimabæ hátíðarinnar, og myndir og myndbönd frá fyrri hátíðum. Í nýjum pistli á síðunni segir að Aldrei fór ég suður sé Woodstock Íslendinga. „Með hækkandi sól og straumi aðkomumanna kemur ný hátíð, meiri tónlist, meira stuð og minni fýla. Engin efnahagsleg lægð, díoxín mengun eða kjarnorkuslys á eftir að megna að koma í veg fyrir það að Ísafjörður um páskanna 2011 verður THE pláss til að vera á.“ 
Daníel Jakobsson bæjarstjóri opnar nýju síðuna.
Daníel Jakobsson bæjarstjóri opnar nýju síðuna.

Nýr vefur Ísafjarðarbæjar hefur litið dagsins ljós. Við hönnun hans var litið til þess að hafa sem greiðast aðgengi að þeim upplýsingum sem notendur þurfa hvað mest á að halda. Þá var forsíða einfölduð og reynt að stytta leiðir í uppbyggingu vefjarins.

 

Síðan er hönnuð af þeim Ágústi Atlasyni og Sturlu Stígssyni, vefhönnuðum hjá Snerpu ehf. á Ísafirði, og efnisuppbygging var í höndum upplýsingafulltrúa Ísafjarðarbæjar. Notast er við vefumsjónarkerfið Snerpil frá Snerpu ehf. Er það mat þeirra sem að vefnum standa að vel hafi tekist til við uppbyggingu, en eins og alltaf má búast við einhverjum byrjunarerfiðleikum. Eru notendur beðnir um að sýna þolinmæði, en láta þó vita á netfangið upplysingafulltrui@isafjordur.is ef eitthvað virkar ekki sem skyldi.

 

Síðan á eftir að taka einhverjum breytingum á næstu vikum og mánuðum eftir því sem þurfa þykir. Verður við þær breytingar reynt að taka mið af þeim ábendingum sem berast.

 

Því miður reyndist ekki mögulegt að birta fundargerðir við opnun síðunnar, en úr því verður ráðið á allra næstu dögum. Í millitíðinni er hægt að biðja um tilteknar fundargerðir á textaformi í gegnum netfangið upplysingafulltrui@isafjordur.is.

Starfsmenn Snerpu undirbúa partý!
Starfsmenn Snerpu undirbúa partý!
Um þessar mundir eru 15 ár frá því tölvuþjónustan Snerpa hóf starfsemi sína.  Í tilefni að því  verður opið hús, í húsnæði fyrirtækisins Mánagötu 6 á Ísafirði, frá 15:00 til 17:00 föstudaginn 27. nóvember.  Hinn margrómaði Hermann pylsusali verður með vagninn fyrir utan Snerpu og viljum við bjóða alla velkomna í pylsupartý.  Auk þess munu starfsmenn Snerpu kynna starfsemina og þá fjölbreyttu þjónustu sem fyrirtækið bíður upp á og tölvubúnaður frá Opnum kerfum kynntur.
Nýtt útlit Misa.is
Nýtt útlit Misa.is
« 1 af 2 »
Snerpa hefur haft í hönnun nýjan vef Menntaskólans á Ísafirði. Er þetta uppfærsla á eldri vef og efni er betur skipulagt núna ásamt mörgum nýjungum sem finna má víða um vefinn. Nýjar myndir prýða nú síðuna og spila stórann þátt í að létta síðuna og gera hana vænni á að horfa. Vefurinn mun verða í þróun í vetur en ákveðið var að skipta um leið og hann yrði betri en sá gamli.

Fyrir hönd Snerpu vil ég óska Menntaskólanum kærlega til hamingju með nýjan vef.

Misa.is
Fyrri síða
1
23Næsta síða
Síða 1 af 3