Nýr vefur rokkhátíðar alþýðunnar Aldrei fór ég suður er kominn í loftið. Síðan er hönnuð af snillingnum Ágústi Atlasyni og keyrir á vefumsjónarkerfinu Snerpli frá Snerpu. Á síðunni er að finna ýmsar nýjungar auk þess sem til stendur þar fari fram öflugari fréttaflutningur en á gamla vefnum. Þar er að auki að finna gagnlegar upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar, Ísafjörð, heimabæ hátíðarinnar, og myndir og myndbönd frá fyrri hátíðum. Í nýjum pistli á síðunni segir að Aldrei fór ég suður sé Woodstock Íslendinga. „Með hækkandi sól og straumi aðkomumanna kemur ný hátíð, meiri tónlist, meira stuð og minni fýla. Engin efnahagsleg lægð, díoxín mengun eða kjarnorkuslys á eftir að megna að koma í veg fyrir það að Ísafjörður um páskanna 2011 verður THE pláss til að vera á.“
Skrifaðu athugasemd:
Eldri blogg
- Nýr vefur Tálknafjarðarhrepps
- Nýr rokkvefur í loftið!
- Nýr vefur Ísafjarðarbæjar
- Snerpa opnar pylsuvagn
- Nýr vefur Menntaskólans á Ísafirði
- Veftilboð Snerpu - Til nýsköpunarverkefna og smærri fyrirtækja
- Háskólasetur Vestfjarða
- 2 nýir vefir sem nota Snerpil vefumsjón
- Raggagarður.is
- Gistihúsið við fjörðinn
- Eldri færslur

Sturla Stígsson | mánudagurinn 21. mars 2011